Amerísku dansmyndir frá níunda áratugi tuttugustu aldar fengu gífurlegt fylgi. Þær voru oftast ódýrar í framleiðslu þar sem var leitast við að hagnýta vinsæld ákveðinna skemmtikrafta og listamanna sem höfðu áunnið sér vinsældir í annars konar listgreinum en kvikmyndum. Ólíkt klassísku dans-og söngvamyndum í Hollywood , voru kvikmyndirnar gerðar fyrir fremur lítinn hluta markaðarins og einblíndu á yngra fólk. Þær voru oft gerðar í flýti, og leikhæfileikarnir voru síður en svo í fyrirrúmi. Töfrar þessara kvikmynda fólust í draumasenum þar sem hægt var að sjá vinsælt listafólk úr dans og /eða söngheimi samtímans.[1 ] Níundi áratugur 20. aldar einkenndist af því að almúginn vildi kunna að dansa og alls staðar var hægt að læra það, en dansklúbbar og mismunandi hópar hip -hop götudansara á vestur og austurströnd USA voru einkenni vinsællar menningar á þessum tíma.[2 ] Mörg einkenni úr draumasenum klassísku hefðarinnar á þr...
Ég náði tali af einum merkasta samtímalistamanni okkar tima , kúbanska listmálaranum José Bedia (f. 1959) þar sem hann útskýrir erkitýpur í verkum sínum. Bedia setur mikið af upplýsingum inn í myndrammann og væri því athyglisvert að sjá hið algilda í verkum hans, en áhorfandinn gæti þá mögulega skoðað verk hans út frá nýju sjónarhorni. Bedia nefnir m.a. þrjú málverk sem gagnlegt væri að skoða til þess að greina sameiginlegar erkitýpur sem leiða í gegnum verk hans og útskýrir hann einnig í hvernig samhengi hann framsetur þær (26). Muasa Tay (mynd 1), eða hjartardýrið er andi skógarins og veiðinnar. Inni í dýrinu gæti verið náttúrumótíf Kúbu eða annarrar eyjar. Mannsandlit er teiknað á hjartasvæðinu sem gefur tilfinningu fyrir samruna manns og dýrs. Hringlaga ljósgeisla mótíf notar hann oft að túlka eitthvað óáþreifanlegt. Á Cora - Nayeri tungumáli Mexíkó er dýrið þekkt sem dýr ljóssins. Verkið er gert eftir ...