Amerísku dansmyndir frá níunda áratugi tuttugustu aldar fengu gífurlegt fylgi. Þær voru oftast ódýrar í framleiðslu þar sem var leitast við að hagnýta vinsæld ákveðinna skemmtikrafta og listamanna sem höfðu áunnið sér vinsældir í annars konar listgreinum en kvikmyndum. Ólíkt klassísku dans-og söngvamyndum í Hollywood , voru kvikmyndirnar gerðar fyrir fremur lítinn hluta markaðarins og einblíndu á yngra fólk. Þær voru oft gerðar í flýti, og leikhæfileikarnir voru síður en svo í fyrirrúmi. Töfrar þessara kvikmynda fólust í draumasenum þar sem hægt var að sjá vinsælt listafólk úr dans og /eða söngheimi samtímans.[1 ] Níundi áratugur 20. aldar einkenndist af því að almúginn vildi kunna að dansa og alls staðar var hægt að læra það, en dansklúbbar og mismunandi hópar hip -hop götudansara á vestur og austurströnd USA voru einkenni vinsællar menningar á þessum tíma.[2 ] Mörg einkenni úr draumasenum klassísku hefðarinnar á þr...